07.02.2012 14:37

ertu að leita að íbúð á flottumstað?

Þá mæli ég með þessari:  http://valfell.is/soluskra/eign/207623/
Þessi íbúð er til leigu  frá og með 1. apríl, möguleiki á að fá hana fyrr ef um það er samið. Við viljum fá 100þúsund krónur fyrir hana fyrir utan hita og rafmagn. hún er á besta stað í bænum, stutt í allt og í mjög rólegri götu. frekari upplýsingar í s:8474127 (Stefán) og 8481991 (Sylvía Hera)

Já, og... velkomin á skagann :)

03.02.2012 16:52

Febrúar og snjólaust

Já janúar liðinn og strax farið að styttast til næstu jóla, að vísu eru páskarnir fyrst og versló og allar þessar bæjarhátíðir sem einkenna orðið sumarið okkar stutta.

Spurning um að fara að huga að jólagjöfunum eða........?

Mikið rosalega hefur janúar boðið mér upp á mikla leti, hef vart farið af bæ nema brýna nauðsyn hafi borið til, öðruvísi mér áður brá.

Átti hreint út sagt bráðskemmtilegt kvöld í gærkvöldi, það var OLÍSgelluhittingur, þ.e. gamla góða vaktin mín og við fórum á Gamla Kaupfélagið og fengum okkur að borða og slúðruðum ögn eins og sagt er að allar konur geri, mjög nauðsynlegt og uppbyggilegt. Hlakka til næsta hittings

Dreif mig í leikskólaheimsókn í dag, það var opið hús fyrir ömmur og afa og þó ég sé langamma hentist ég nú samt og leiraði smá með pæjunni minni.

Gengur akktof hægt með gluggatjöldin sem ég er að hekla, er aðeins að vandræðast með þau, en er vonandi að sættast á útkomuna eins og hún er núna.

Makalaust hversu erfitt er að komast í blogggírinn, verð alltaf svo andlaus um leið og ég opna þessa síðu, þó svo að það sé fullt í kollinum á mér þegar ég ákveð að blogga, oftast loka ég bara aftur og geri ekki neitt, en núna var bara ákveðið að láta vaða með nákvælega ekkert innihald hehe.

27.01.2012 21:02

skemmtileg íbúð til leigu

http://valfell.is/soluskra/eign/207623/

Róleg gata, stutt í búðir og á heilsugæsluna.
Nánari upplýsingar fást hjá henni Sylvíu Heru í síma 8481991

14.01.2012 13:23

Fullt af verkefnum sem bíða...

... þess að á þeim sé tekið og þau afgreidd! Þarf að rjúka í að hekla fyrir einn glugga, ja eða hurð hehe, þ.e. fyrir glugga í útidyrahurð hjá frumburði mínum. Myndin/gluggatjaldið þarf að vera ca 1mx70cm og hlakka ég til að byrja á því. Fyrst þarf að ljúka vettlingaprjóni sem er að því er virðist nánast óframkvæmanlegt, er bara ekki að skilja þetta, en jæja það er nú bara eftir að ganga frá endum og þvo og koma þeim svo til síns heima, og þá.... já þá verður rokið í að vinda upp garn og heklunálin munduð. Er reyndar með dúk á nálinni núna svona fyrir mig, en hann er bara svona aukreitis, liggur sko ekkert á með hann, kannski klár áður en ég fer inn á Höfða

Allt að gerast, Sylvía Hera og fjölsk að flytja vestur á Bolungarvík og þá ákvað sonur minn að flytja líka, tekur íbúðina þeirra á leigu og flytur upp, bara spennandi fyrir hann og þægilegt líka þar sem hann er ekki með bílpróf og þar afleiðandi ekki með bíl, stutt að skottast í mat hjá mömmu og þægilegt fyrir mig líka þar sem að ég mundi örugglega skjótast með hann í búð hvort sem er, þá hentar ágætlega að hafa hann svo nærri.

Það snjóar ögn hér í dag en er búið að rigna ágætlega, vona að mestu svellin séu farin hérna á skaganum, það er svo andstyggilegt þegar snjóar ofan á svellin aftur. Ekki það, ég hef svosem alveg verið sátt við þennan snjó sem var, ef mér leiðist eitthvað í veðráttunni eru það fj... umhleypingarnir.

En, jæja, það gerist ekki mikið á meðan ég sit hér og þukla lyklaborðið, eins gott að slá botninn éssháttar gauf.

Njótið dagsins og helgarinnar
emoticon
    Flettingar í dag: 16
    Gestir í dag: 6
    Flettingar í gær: 37
    Gestir í gær: 17
    Samtals flettingar: 208248
    Samtals gestir: 53990
    Tölur uppfærðar: 9.2.2012 09:08:45