Um mig

Hér er ég :)

Ég heiti Guðrún Jóhannesdóttir og bjó í Stykkishólmi, þeim ágæta bæ á norðanverðu Snæfellsnesi í tæp 2 ár,.en nú er ég flutt á Akranes og líst ekki illa á hér.Er að kaupa mér íbúð og þaðan er stutt í flesta þjónustu en samt er gata mín róleg og í fyrsta skipti í 20 ár bý ég EKKI við aðalgötu bæjarins þar sem ég bý !

Hér ætla ég aðeins að leika mér og leyfa ykkur að fylgjast með t.d. er ég að fletta spilum, steypa kerti, kasta rúnum o.fl.

Ég safna bollum, allskonar bollum, fínlegum og groddalegum, og allt þar á milli.

Nú er stefnan sett á koma mér áfram með LR vörunum en það eru snyrtivörur, aloe vera lína bæði útvortis og innvortis, ilmir og heilsuvörurViðskiptatækifærið er alveg frábært og vel þess virði að skoða það.

Ég á 4 börn, 3 börn með fyrri sambýlismanni mínum Jóni Hjartarsyni frá Fossi í Dölum, þau eru öll búin að færa mér tengdabörn (jafnvel alla leið frá Póllandi) og ekki minna en 8 barnabörn, að auki 2 fósturömmubörn hjá elsta barninu.

Yngsta barnið á ég svo með seinni sambýlismanni mínum Ragnari Stefánssyni, hann er úr Reykjavík, en hann bjó á Hvammstanga þeim yndislega stað sem stendur við Miðfjörð. Þar er mjög fallegt og bærinn virkilega snyrtilegur. Yngsta barnið er sonur og hann er að færa mömmu sinni tengdadóttir frá Kaliforníu.

Á meðan ég var á Hvammstanga var ég í kvennakór sem nefnist LILLUKÓRINN, það var yndislegt starf, ótrúlega góðurhópur sem samanstendur af þetta u.þ.b. 30 konum sem ALLTAF eru í góðu skapi.

Í Stykkishólmi var mig helst að finna hjá OLÍS eða Bensó eins og við köllum sjoppuna þar, og vann ég vaktavinnu og kunni vel við mig, fínt samstarfslið svo ekki sé meira sagt, en nú er mig að finna hjá OLÍS við Esjubraut og þar er sama sagan, vaktavinna og það fólk sem ég hef unnið með núna (28/6 ´06).líst mér rosalega vel á.

Þar sem ég var nú að lagfæra hérna og bæta við og taka út, get ég sagt ykkur það að ég er enn mjöööög ánægð með vinnufélagana á Esjubrautinni, þau eru öll frábær.

breytt og bætt 7/11 2006

Flettingar í dag: 32
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 72
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 214854
Samtals gestir: 55516
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:37:28