smákökur og fleira gott

Íssósan hennar Jónu Guðbjargar
1/4 peli rjómi
100 gr suðusúkkulaði
1 mars
Aðferðin
bræða súkkulaðið við vægan hita hella rjómanum út í skera marsið smátt niður og setja í pottinn og hræra stanslaust í. Og út úr þessu kemur þessi glimrandi góða íssósa Gráðugur 


daimísur
Muna bara að KNÚSA daimið vel
3 eggjahvítar
150 gr sukur
150g fínthækkaðar mandlur
píska eggjahvítar og sukur til tað er stívt, vend so mandlurnar í.
bakast 30min 175 gradir.

Fylla:
3 eggjablommir
3spsk sukur
3 dl róma
4 dupult daim ella 4 lítil.

píska eggjablommur og sukur væl.
píska róman stívan
bland hetta saman og knúsa daimimi niður í.
legg hetta á botnin tá hann er kólnaður og fryst minst 4 tímar.
Tú kanst saktans brúka mars ístaðin fyri daim.

vælgagnist.


Serenukökur
Jólasmákökur sem hafa fylgt mér alla mína ævi

250 gr smjörlíki
250 gr sykur
2 egg
500 gr hveiti
2 tsk lyftiduft
1/2 tsk hjartasalt
1 tsk vanilludropar
------------------------
Ofan á kökurnar í einni skál:
1-2 egg, pískuð saman
og svo í aðra skál:
kókosmjöl og sykur 50/50 hrært saman

Smjörl og sykur er hrært ljóst og létt, bætið eggjunum út í einu í senn.
Þurrefnin eru sett á borðið, hræran sett þar saman við. Hnoðað.
Mér finnst best að kæla deigið örn.
Búnar til litla kúlur, þeim raðað á ofnplötu, gerð laut í hverja kúlu með fingri, eggjahræran sett í og svo sykur og
kókosmjölið.
Bakað við ca 180 gr á C í 10+ eða þar til kökurnar eru fallega gullnar
Þessar kökur hafa alla tíð verið mínar uppáhaldskökur, og ég hef bakað þær öll mín búskaparár og mamma þar áður. Hún hefur sennilega fengið þessa uppskrift þegar hún vann á Bessastöðum ung stúlka.

Piparkökur

Þær allra allra bestu :)

500 gr hveiti
250 gr sykur
250 gr smjörlíki mjúkt
2 tsk negull
1 tsk pipar
2 tsk kanill
2 tsk natron
2 egg
1 dl síróp

Hveitinu og öllu hinu er hnoðað saman, deigið sett í kæli um stund, búnar til litla kúlur sem eru aðeins flattar út, raðað á ofnplötu og bakað við svona 180 gr á C í 10 mín, eða þar til þær eru fallega brúnar en þó ekki brenndar.
Heimsins bestu piparkökur þó ég segi sjálf frá.
Uppskriftin er fengin hjá mágkonu minni fyrrverandi henni Jónínu Ívarsd árið 1969, og hefur verið bökuð á hverjum jólum síðan á mínum bæ.

Flettingar í dag: 32
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 72
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 214854
Samtals gestir: 55516
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:37:28