Færslur: 2012 Febrúar
07.02.2012 14:37
ertu að leita að íbúð á flottumstað?
Þá mæli ég með þessari: http://valfell.is/soluskra/eign/207623/
Þessi íbúð er til leigu frá og með 1. apríl, möguleiki á að fá hana fyrr ef um það er samið. Við viljum fá 100þúsund krónur fyrir hana fyrir utan hita og rafmagn. hún er á besta stað í bænum, stutt í allt og í mjög rólegri götu. frekari upplýsingar í s:8474127 (Stefán) og 8481991 (Sylvía Hera)
Já, og... velkomin á skagann :)

Skrifað af Mamman/Gunna
03.02.2012 16:52
Febrúar og snjólaust
Já janúar liðinn og strax farið að styttast til næstu jóla, að vísu eru páskarnir fyrst og versló og allar þessar bæjarhátíðir sem einkenna orðið sumarið okkar stutta.
Spurning um að fara að huga að jólagjöfunum eða........?
Mikið rosalega hefur janúar boðið mér upp á mikla leti, hef vart farið af bæ nema brýna nauðsyn hafi borið til, öðruvísi mér áður brá.
Átti hreint út sagt bráðskemmtilegt kvöld í gærkvöldi, það var OLÍSgelluhittingur, þ.e. gamla góða vaktin mín og við fórum á Gamla Kaupfélagið og fengum okkur að borða og slúðruðum ögn eins og sagt er að allar konur geri, mjög nauðsynlegt og uppbyggilegt. Hlakka til næsta hittings
Dreif mig í leikskólaheimsókn í dag, það var opið hús fyrir ömmur og afa og þó ég sé langamma hentist ég nú samt og leiraði smá með pæjunni minni.
Gengur akktof hægt með gluggatjöldin sem ég er að hekla, er aðeins að vandræðast með þau, en er vonandi að sættast á útkomuna eins og hún er núna.
Makalaust hversu erfitt er að komast í blogggírinn, verð alltaf svo andlaus um leið og ég opna þessa síðu, þó svo að það sé fullt í kollinum á mér þegar ég ákveð að blogga, oftast loka ég bara aftur og geri ekki neitt, en núna var bara ákveðið að láta vaða með nákvælega ekkert innihald hehe.

- 1
Flettingar í dag: 32
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 72
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 214854
Samtals gestir: 55516
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:37:28